Anna Vala-litla stelpan með sleifina

Það er tvennt sem ég safna: pappírar og traustir vinir.

mánudagur, apríl 02, 2007

Ég er farin yfir á einveil.blog.is nenni þessu ekki lengur.....
Gamla efnið verður aðgengilegt hér enn allt nýtt á blog : )

Sjáumst þar !!!!
Kveðja,
Anna Vala

sunnudagur, mars 25, 2007

Þar sem hægt er að slappa af....
Kaupmannahöfn er æðisleg borg engin New York enn samt er eitthvað sem toppar hana ? Í kóngsins Köben er í lagi að sötra bjór hvar sem er og hvenær sem er. Hún er falleg, notaleg og svolítið íslensk. Maður getur rölt um og sagt Ísland á þetta og þetta og þetta....Enn svo er alltaf spurningin hvað það er að eiga osfrv og hver á hvern fyrir rest. Svo má auðvitað heyra íslenskuna í Hennes og Mauritz ef maður er að sálast úr heimþrá ja eða koma við á Mc Donalds.
Þessi borg minnir mig þó alltaf rosalega á á góða vinkonu mína sem að ég fór með þarna í fyrsta skipti, þess vegna er þetta svolítil Annýar borg. Það var bara alger snilld utan við að við vorum akkúrat á tímaskiptum. Þannig að í miðjum strætó vorum við allt í einu búnar að tapa einni klst he he. Það VARÐ fyndið stuttu síðar.
Síðast þegar að ég fór til Kaupmannahafnar fór ég með Tótu og Sollu systur hennar. Ég hitti þær á föstudegi og það var tekið strike beint á barinn. Drukkið öl, farið á flottustu matsölustaðina og hlegið út í eitt, ja svo má ekki gleyma Jagermaster sem drekka má við öllum meinum eins og ofáti og þynnku. Og já það virkar í öllum tilfellum Tótan mín þekkir lífið og hvað virkar best þó að hún hafi klikkað á að dansa við mig til 06. Ég fann aðra til þeirra hluta. Hressa íra og nokkra dani sem dönsuðu villtan dans við stelpuna fram eftir nóttu. Ekkert stress bara bjór og góður félagsskapur. Lentum ekkert í óeirðalögreglunni né fengum táragas í augun. Skildum ekki alveg þennan æsifréttaflutning að heiman um að allt væri að verða crazy við Norðurbrú. Og eftir dans við íra-sem að fengu nota bene óeirðalögregluna til sín, daður við lífið og tilveruna, ofverslun í Sænsku aðalbúllunni, einni ljósakrónu seinna, einu írsku símanúmeri, brunch á Kaffe Norden og kveðjukossum var ferðinni lokið. Stelpurnar fóru heim og ég fór á fund. Tíminn hreinlega líður of hratt í svona ferð. Þarf augljóslega að fara oftar erlendis: )

Kossar
Anna

fimmtudagur, mars 08, 2007

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna....
Er í dag.....stelpur-konur til hamingju með daginn, eða kannski ekki er ekki ógisslega púkó að vera feministi eða kvennréttindakona. Felum við okkur ekki inn í skáp með það eins og annað ? Veit fólk t.d hvað feministi er ? Það er orð yfir karl eða konu sem veit að jafnrétti kynjanna hefur ekki verið náð. Og geti þið mörg þarna úti sagt að því sé náð? Er eðlilegt að konur hafi lægri laun enn karlar. Segiði Já við því og kallið ykkur ekki feminista.

Til hamingju aftur
kv Anna

fimmtudagur, mars 01, 2007

Copenhagen.....
Ooohh hvað það er langt síðan ég hef farið út með vinum mínum enn það er ég einmitt að fara að gera eftir eins og 12. klst. Köben skal það vera. Hlakka til að eyða stund með góðum vinum, drekka öl og skoða strákana he he. Sit heima og reyni að pakka. Samkv. Tótu minni er ekki mikill snjór og ég get verið á gullskónum. Ef að ég á að vera á gullskónum....þá getur ekki verið snjór. Spurning samt hverju maður á að klæðast þegar að maður skellir sér í óeirðirnar. Ha smá táragás og stemmning. Víst allt logandi í Norðurbrú samkv mbl.is...."Talsmaður dönsku lögreglunnar sagði um hálf sjöleytið í kvöld að íslenskum tíma að hún hefði „tiltölulega góð tök á ástandinu“ á Norðurbrú, „en maður veit þó aldrei“. Um eitt þúsund ungmenni réðust gegn lögreglunni í kvöld með grjóti, flöskum, málningadósum og flugeldum. Reist voru götuvígi, eldar kveiktir og bílum velt."

Einmitt gott ástand he he

Farin til Köben gott fólk eða....allavega að klára bjórinn sem ég er byrjuð á

þriðjudagur, febrúar 27, 2007

StjörnuspáÞeir sem að þekkja stelpuna vita kannski að hún er ljón þ.e stjörnumerkið. Aðalgrínið hjá vinnufélaga mínum þessa dagana er að ég semji stjörnuspá moggans sjálf he he.
Ansi oft undanfarna daga hefur hún átt einkar vel við mig. Reyndar bara moggaspáin ekki skemmtileg ársspá Séð og heyrt þar sem að ég á að eiga í sambandi við ríkan giftan mann á árinu....kannski það sé eftir.
Spáin mín í dag er svona. Er þetta ég ?

"Þú ert vinur þeirra sem enga vini eiga. Opnar heimili þitt þeim sem eru á götunni. Gefur peninga þeim sem það þurfa. Tekur þessi eilífa hjálparstarfsemi aldrei enda? Hún gerir það í eftirmiðdaginn þegar einhver hjálpar þér. Núna getur þú æft þig í að þiggja"
Later fólks
Anna

sunnudagur, febrúar 25, 2007

Car number two......

Ég á nýjan bíl....VEI. Annað skiptið í þessum mánuði. Hvað skeður næst hjá kellunni? Fylgist spennt með. Hann er nú keyrður 113 km hvað ætli hann endist lengi hmmm?? Allavega sel ég Golfinn ekki fyrr enn þessi nýji bíll hefur verið keyrður 1000 km....better be safe sko. Annars nýjasta nýtt, fór á Food and fun um helgina eitthvað sem að mér finnst bara æðislegt. Bíð alltaf spennt eftir þessari matarhátíð. Við fórum tvö og áttum líka þetta yndislega kvöld á Vox. Geggjaður matur og þjónustan frábær-vorum reyndar farin að rugla í þjóninum og svona. Gátum ekki verið alvarleg þegar hún kom he he. Date ið mitt var á því að þessi stelpa væri svo hress að þetta væri ábyggilega systir mín he he he. Þess má geta að kokkurinn sem var að matreiða ofan í okkur vann einmitt Food and fun keppnina í ár, bara kúl. P.s hann var finnskur....ha finnarnir klikka ekki. Bla er maður með rugluna eða hvað á sunnudagskvöldi. Afhverju er ég t.d að blogga ? Afhverju er ég ekki að læra? Einbeitingaskortur eða mikill athyglisbrestur hrjáir mig eða hvað þetta allt heitir. Er ég kannski eftir mig eftir Sálarballið í gær með Stebba vini mínum ?
Hey svo var Rósa mín í tv inu um helgina í þættinum með Jóni Ólafs. Söngkonan í Helga og hljóðfæraleikurunm....hvet ykkur til að skoða það
á ruv.is. Hún er æði á eftir að ná langt þessi gullmoli

Farin að glápa á Boston Legal

fimmtudagur, febrúar 22, 2007

Akademískt korter......

Hverjum datt það í hug? Af hverju er það bara í lagi að mæta of seint? Ja allavega á Íslandi. Ég er yfirleitt þekkt fyrir að mæta á slaginu. Maður bara skipuleggur sig þannig að maður sé á réttum tíma. Óþolandi óvirðing að eyða svo tíma sínum í að bíða eftir hinum sem að dettur í hug að mæta korteri of seint eða síðar. Enn tuði dagsins er lokið....þið takið þetta til ykkar sem eigið.
Annars er þetta hætt að vera dagbók hjá mér er meira orðin vikubók eða mánaðarbók. Tíminn hreinlega æðir áfram. Kíkti aðeins til Stokkhólms í síðustu viku. Náði þar að hitta hana Önnu, stelpu sem ég var svo ljónheppin að hitta í Kiljava sl haust. Drukkum nokkra öllara og hringdum í strákana til að tjá þeim hversu annars óheppnir þeir væru að vera ekki þarna með okkur. Náði svo að versla í H&M á núll einni eins og maður segir. Snillingur í að eyða þar. Prísinn er bara svo góður og svo vantar mig alltaf eitthvað hmmmm....á ekki nema ca 20 pils 10 kjóla osfrv....ekki vill fólk að ég sé nakin.

Takk í bili og ég segi bara klöppum fyrir stelpunni sem að náði að eyðileggja bíl eftir 770km .........

Love Anna
 
eXTReMe Tracker