Anna Vala-litla stelpan með sleifina

Það er tvennt sem ég safna: pappírar og traustir vinir.

sunnudagur, nóvember 12, 2006

Hef munað fífill minn fegurri....
Já það hef ég sko gert hef undanfarna daga. Er svo slöpp og orkulaus. Er semsagt að breytast í löglegan aumingja. Má þakka fyrir að komast heim úr vinnunni algert rugl. Enn vona að læknirinn minn sem að ég held að sé feiminn við mig...enda varla mikið eldri enn ég finni út úr þessu. Eða kannski er hann bara að setja mig í test til að hitta mig sem oftast og sprauta einhverju drasli í mig....bla bla. Annars fer að styttast í New York...þangað fer kella eftir hvað 10.daga. VÁ þetta er svo fljótt að líða. Hlakka til að sýna systur minni borgina. Leyfa henni að upplifa NY, borða á flottum stöðum, eyða helling af peningum, drekka öl með mér og síðast enn ekki síst þá fær hún að kúra hjá mér heppin HA ?? Hér má sjá hótelið okkar Radisson SAS NY . Vona að það standist væntingar, held að annað sé ekki hægt he he. Annars bara allt ljúft. Ætla að fara að úða í mig ljúfu nýbökuðu bananabrauði nammi namm.


"Ef þér finnst þú þurfa að brosa, láttu það eftir þér"

knús Anna panna

7 Comments:

  • At 4:13 PM, Blogger Guðbjörg said…

    já það er eins gott að þú rífir þig upp úr þessu heilsuleysi því NEW YORK bíður okkar:)

     
  • At 5:12 PM, Blogger Anna Vala said…

    Eins gott. Annars gæti verið að heilsan mín sé bara í New York heheh. Hlakka til

     
  • At 7:21 AM, Blogger Aldís said…

    Æ, ég veit alveg hvað það er sem er að hrjá þig.. þú ert komin með fráhvarfseinkenni að hafa mig ekki hjá þér... mér er líka búið að líða pínu svona og ég held það sé EINMITT af því að mig vantar þig!! Sjáumst ógeðslega fljótt. Skemmtu þér mega vel í NY og hringdu nú í mig fyrst við erum í sama landi hehehe. Knús. Love u.

     
  • At 1:51 PM, Blogger Anna Vala said…

    Ohhh ástin mín auðvitað. Mig vantar bara Aldísi mína. Sætustu og bestu konu í heimi. Hlakka ofurmikið til að sjá þig....og bjalla í þig í New York;)

    Knús og miljón kossar

     
  • At 4:02 PM, Anonymous Nafnlaus said…

    Já Anna ekki gaman að heyra að þú sért eitthvað slöpp vona að þú náir þér á strik og njótir að vera í New york hrees og og kát.Stelst stundum til að lesa bloggið þitt og ákvað núna að setja stafina mína á þetta ,Hafðu það sem best kveðja.Árni

     
  • At 4:15 PM, Anonymous Ásdís frænka said…

    Vá! Skemmtið ykkur vel í Nýju Jórvík...! Væri alveg til í að koma þangað einhvern tímann!!! Reynið nú að gera eitthvað gagnlegt þarna úti, ekki BARA hella í ykkur öli ;o)

    Hint: Kaupa gjafir handa mér ;o)

     
  • At 6:23 PM, Anonymous Nafnlaus said…

    Flakkari af guðs náð er það sem mér dettur í hug þegar ég hugsa um þig ... aldrei heima hjá þér... en ég held þú verðir ekki svikin af þessu hóteli... lítur vel út á myndunum allavega. Við fáum okkur einn öl eða svo í flughavn ;)

    Mæsan

     

Sendu inn athugasemd

<< Home

 
eXTReMe Tracker