Anna Vala-litla stelpan með sleifina

Það er tvennt sem ég safna: pappírar og traustir vinir.

miðvikudagur, nóvember 22, 2006

I want to wake up in a city!!!!



New York á morgunn ekki laust við að það sé komin spenna í kellu. Ég ætla að reyna að kaupa jólagjafir þrátt fyrir að geta ekki hringt mikið í múttu he he. Man það eins og gerst hafi í gær þegar að ég hafði í gleði minni ákveðið að gefa systur minni og kærastanum hennar náttföt. Ekkert smá ánægð með það. Sagði móður minni glöð frá þessu. Mútta sagði mér það að kærustupar svæfi nú ekki í náttfötum. Nú spyr ég þig systir. Var þetta rétt....voru þið nakin !!!!!! Komin með umræðuefni yfir fyrsta Mojito í NY spurning hvað verður næsta umræðuefni. Lenti í spjalli um daginn um hvernig kynfræðslu fólk hefði fengið frá foreldrum sínum og hvort að það væri mismunandi milli systkyna. Kannski það verði rætt yfir nettum Cosmopolitan.
Það sem að ég segi fólk í sambúð he he. Kaupi ekki gjafir handa mörgum pörum svo þetta hlýtur að sleppa til : )

Sefur þú í náttfötum....
Anna panna

5 Comments:

  • At 10:37 PM, Blogger Sigga Gunna said…

    Hmm, ég held að systir þín sé ekkert enþá farin að sofa í náttfötum ;o) En góða skemmtun í stórborginu, passaðu nú vel upp á stóru systur!!!

     
  • At 1:13 PM, Blogger heimsborgari said…

    Ég bíð spenntur að heyra hvort að systa hafi sofið í náttfötum með kærastanum... Þegar ég átti kærasta/bólfélaga, þá vissi hann alltaf hvað stóð til, eftir því hvort ég stökk upp í nakinn eða fór í náttbuxur fyrst...

     
  • At 10:59 PM, Anonymous Dagný said…

    Alveg sammála síðasta ræðumanni, held þetta fari ansi mikið eftir því einmitt "hvað stendur til"
    Ég þekki það, hehe....

     
  • At 6:15 PM, Anonymous Dagný said…

    Hæ skvís og velkomin heim. Hvernig var í nú jork??

     
  • At 11:04 PM, Blogger Aldís said…

    Þetta er einmitt spurning um hvort það er Hönkedíhönkhönk hjá þér eða hvort að eitt stykki náttföt þurfa að hlýja þér :)

    Velkomin heim!! Séð þig... BRÁÐUM.

     

Sendu inn athugasemd

<< Home

 
eXTReMe Tracker