Anna Vala-litla stelpan með sleifina

Það er tvennt sem ég safna: pappírar og traustir vinir.

laugardagur, nóvember 18, 2006

Snjókorn falla á allt og alla....la la la Ég er eins og smábarn þegar að kemur að þessu jólastússi. Fann mér afsökun í þessum skítakulda 13 stiga frost á mæli. Ojbarasta. Enn ég fann leið. Fyrsta smákökusortin komin í ofninn. Eins og ég hafi nú gott af því enn....Þetta er gott fyrir gesti he he. Fátt meira kósý enn spjall yfir smákökum og mjólk:) Svo er það bara Ameríka eftir 5.daga. Þar hlýt ég nú að finna jóla-eitthvað ? Eða hvað ? Hlakka svo til að kaupa jólagjafir, fara út að borða og svona. Koma svo hingað heim í stressið með allt klárt. Dúlla mér bara á jólatónleikum, skrifa á kort og baka kökur:) Auðvitað verður Kata mín með mér sem að er búin að öllu he he. Kata mín þú ert flottust. Liggur við að þú toppir vinkonu mína hana Bree í Desperate houswifes. Annars stefnir bara í rólega helgi, kannski maður taki upp serírurnar. Ég meina sko ég verð svo þreytt þegar að ég kem að utan bla bla bla : )

Þarf að huga að kökunum

Síðar

7 Comments:

  • At 3:46 PM, Anonymous Ásdís frænka said…

    Mmmm... smákökur...!

     
  • At 9:25 PM, Anonymous Dagný said…

    Yes!! ég er ekki sú eina, en mín tók jólahreingerninguna í gær, reyndar ekki alla og skreytti pínku, upphaflega ætlaði ég bara að setja seríur en þar sem mig vantar teiknibólur þá þurfa seríurnar að bíða en nokkrir jólasveinar fengu að fara uppúr kassa og jólaeldhúsgardínurnar. Allir ýkt hissa á mér en hey, afhverju þarf maður alltaf að lifa eftir einhverjum reglum. Og afsökunin mín er sú að ég verð ekki hér á sjálfum jólunum, heldur í Kópavoginum. hehe.
    Þannig að bara go Anna, það er sko ekkert að þessu....

     
  • At 9:32 PM, Blogger Anna Vala said…

    Nákvæmlega Dagný hvað er þetta með fólk að setja út á þetta...jólin jólin jólin koma brátt :)

     
  • At 11:19 AM, Anonymous Linda Rós said…

    Þokkalega flott hjá þér... er alveg viss um að þessar kökur þínar verði meira enn ljúfeingar :o)
    Svo er það bara USA hear u come.... geggjað.. góða ferð skvís og hafiði það gott úti systur..
    kv. Linda R

     
  • At 2:20 PM, Anonymous Kóngurinn said…

    Er möguleiki að fá að smakka ?

     
  • At 6:42 PM, Blogger heimsborgari said…

    Ég get vottað það að þær eru þrusugóðar, og búið að ákveða hvaða sort verður næst...

     
  • At 6:52 PM, Anonymous Eyrún said…

    aaaaaaa girnilegar kökur yumm yumm...:D má ég koma o fá smá ??

     

Sendu inn athugasemd

<< Home

 
eXTReMe Tracker