Jæja nú kemur að því færslan sem átti að koma fyrir löngu. Tíminn hefur bara liðið óeðlilega fljótt og búið að vera nóg að gera. Smá skreppitúr til Riga og jólapróf. Enn nú er öllu lokið og jólin nálgast. Mér finnst þessi mynd eitthvað svo jólaleg. Finnst hún lýsa þeirri friði og ró sem að jólin eiga að vera. Ekki það að mér finnst verslunaræðið vera að drekkja jólunum. Enn reyni að horfa franhjá því bara og brosa : ) Ég er nú svo mikið jólabarn. Hlakka alltaf jafnmikið til og skammast mín bara ekkert fyrir það. Vona að það fari aldrei af mér þessi fögnuður við að heyra jólalög og finna jólailm. Enn jólin koma nú aldrei alveg fyrr enn ég er komin norður í land til fjölskyldunnar. Búin að borða skötu með stórfjölskyldunni, kíkja í jólaglögg og knúsa vini mína. Hlakka óendanlega til að hitta litlu englana mína, leika hest, púsla, lita og fara í Lego.Ég óska lesendum síðunnar gleðilegra jóla. Ekki gleyma jólabarninu innra með ykkur og gleðjist yfir því að vera heilsuhraust og eiga góða vini og fjölskyldu. Það ætla ég í það minnsta að gera.
Jólaknús
Anna panna

5 Comments:
At 1:44 PM,
Dagný said…
Hæhæ, langaði bara að kasta á þig jólakveðju, en já það eru bara alveg að fara að koma jól, en þau mega aldrei koma fyrr en maður er komin í faðm fjölskyldunnar. Ég er líka svona jólabarn eins og þú og reyni einmitt að horfa framhjá verslunaræðinu og horfi frekar á snjóinn, jólaskreytingarnar. En það er samt ekki fyrr en maður sér coca cola auglýsinguna í sjónvarpinu þegar maður veit að það eru að koma jól.
Megir þú eiga gleðileg jól í faðmi fjölskyldunnar.
At 1:46 PM,
Dagný said…
Vá smá villur þarna, ætla að laga seinnipartinn hérna. "En það eru samt ekki komin jól fyrr en maður sér coca cola auglýsinguna í sjónvarpinu, þá loksins veit maður að það eru komin jól."
At 2:43 PM,
Nafnlaus said…
hæ hæ elskan..:) þú kemst á eftir ég bara veit það.. hlakka til að sjá þig.. jólaknús anný
At 3:42 PM,
Anna Vala said…
Er á vellinum og hlakka bara til að komast heim. Hlakka mikið til að sjá þig líka Anný mín. Elsku Dagný hafðu það gott um jólin...litla jólastelpa:)
Knús Anna
At 2:27 AM,
rosabj said…
jólakveðja til þín frá mér, æði að hitta þig á aðfangadag! sjáumst vonandi á morgun! =)
Sendu inn athugasemd
<< Home