Anna Vala-litla stelpan með sleifina

Það er tvennt sem ég safna: pappírar og traustir vinir.

þriðjudagur, desember 05, 2006

New York heimaborg mín var heimsótt um þarsíðustu helgi.....ekki klikkaði borgin frekar enn fyrri daginn. Systir mín var reyndar gengin upp að hnjám og með verk í hverjum lið enn hverju skiptir það eftir að hafa augum litið Dinerinn minn

Empire state og Rockafeller center ohhh svo rómó að sjá fólk á skautum í miðri stórborg. Hefði átt að skella mér í staðinn fyrir að vera að knúsa jólasveina og hringja jólabjöllum: ) Maður spyr sig og þræða búðir í mestu örtröð sem að ég hef á ævi minni séð ekki datt mér í hug að Ameríkanar væru svona klikkaðir eftir Thanks giving enn jú greinilega. Þeir versla gjörsamlega af sér rassinn. Síðan var farið að borða á tveimur æðislegum stöðum á Asia de Cuba þar sem að hönnunnin er bara kúl á staðnum og maturinn æði. Þar eru án efa stæðstu skammtar sem að ég hef séð á A la carte stað og sætasti strákurinn sem að sást í ferðinni. Seinna fórum við á stað sem að heitir Nobu, japanskan stað í eigu Robert De Niro stórvinar míns heheh. Þar voru skammtarnir svo smáir að systir mín var farin að tala um að koma við á Mc Donalds á leiðinni heim.

Já og á sama stað og fordrykkurinn var með ávexti út í sem leit út eins og typpi í formalíni. Takk Guðbjörg fyrir að segja þetta í öðrum sopa drykksins.....hann varð sko ekki samur. Enn honum var skolað niður ásamt fleiru hehehe....

Heyrumst síðar
19.dagar til jóla

8 Comments:

  • At 9:41 AM, Blogger Guðbjörg said…

    humm þú sást nú alveg sjálf hvað ávöxturinn minn leit "vel" út!!!
    Annars takk fyrir frábæra ferð:D

     
  • At 10:40 AM, Anonymous Dagný said…

    Velkomin heim gella....

     
  • At 12:22 PM, Blogger Anna Vala said…

    He he systir góð ég kom honum niður....enn ekki með gleði:)
    Enn þetta var stuð. Knús

     
  • At 3:32 PM, Anonymous Ásdís frænka said…

    HAHA! Þið eruð frábærar! Sé ykkur í jólaglögginni fyrir norðan!!!

     
  • At 4:09 AM, Anonymous Kristján Lundberg said…

    Endilega kíktu á Dinerinn í vesturbænum, hann er með finnsku ívafi bara fyrir þig ;)
    kv.
    -kristján L.

     
  • At 11:16 AM, Blogger Anna Vala said…

    Nammi namm jólaglögg. Hlakka til að koma heim í sæluna:)

     
  • At 11:59 AM, Blogger heimsborgari said…

    typpi í formalíni - það hefur ekki verið erfitt að koma því niður...

     
  • At 9:27 PM, Blogger Guðbjörg said…

    nei það var nú ekki erfitt Gulli minn...þetta var ekki nema einn munnbiti ;)

     

Sendu inn athugasemd

<< Home

 
eXTReMe Tracker