Anna Vala-litla stelpan með sleifina

Það er tvennt sem ég safna: pappírar og traustir vinir.

sunnudagur, janúar 21, 2007

Sunnudagsblogg...

Þessi 3 sunnudagur í janúar er búin að vera svona líka fínn bara ja að undanskildu tapi íslenska karlalandsliðsins. Fór á þorrablót í gær til frænda míns. Man ekki hvenær ég fór á slíkt síðast....aldrei verið neitt ofurspennt yfir súrum pungum og súrum hvali. Enn þetta var mjög fínt borðaði allt það ósúra ásamt nýjum hlut sem var djúpsteikt slátur. Já uppfinningasemin er til á fleiri bæjum enn mínum. Þetta var reyndar alveg merkilega gott. Æðislegur félagssakapur líka. Takk frændfólk. Öllu þessu var síðan skolað niður með bjór og Brennivíni:)
Þessi dagur er líka flottur búin að
-skúra heima
-þrífa helv....sameignina heheh
-skoða ferðir fyrir sumarið
-fór í heilun
-las bók
-horfði á Grey Anatomy og grét smá
-bakaði brauð fyrir litlu fjölskylduna

Nokkuð gott dagsverk.

Knús Anna panna

2 Comments:

  • At 3:51 PM, Anonymous Aldís said…

    Þarf alvarlega að fara fá einhverjar góðar brauð-uppskriftir hjá þér. Vantar hreinlega eitthvað til að taka mig frá lestri í skattarétti.. *geisp*..

    Hihi.

     
  • At 1:34 PM, Anonymous almar said…

    Ég er nú hissa að þú hafir verið edrú á sunnudeginum :)

     

Sendu inn athugasemd

<< Home

 
eXTReMe Tracker