Anna Vala-litla stelpan með sleifina

Það er tvennt sem ég safna: pappírar og traustir vinir.

sunnudagur, janúar 28, 2007

Veikindablogg


Hvað er þetta með skrif. Maður ætlar að henda einhverju á blað og þá kemur ekkert þó hausinn hafi áður verið fullur af hugmyndum? Þessi vika er búin að vera frekar leiðinleg. Er nú vön að reyna að fókusa á það góða enn Vá hvað það er erfitt að finna eitthvað jákvætt yfir því að hanga veik heima svo að ég tali nú ekki um meðan að nýr bíll bíður eftir manni í umboðinu. Þessi elska búin að bíða eftir mömmu sinni í 4.daga. Enn hann er æðislegur og heilsast móður og barni vel.
Var orðin svo sýrð af sjónvarpsglápi í vikunni að mig dreymdi að ég væri á leið í hjartaaðgerð hjá Dr Burke (Þetta skilja þeir sem hafa séð Grey). Já manni er ekki viðbjargandi : )

Svo það jákvæða þessa viku.....
-komin í þriðju seríu af Grey Anatomy og aðalparið orðið par aftur (góður endir á veikindalegu)
-var einungis með inflúensuna ekkert sem drepur mann.
-fékk símtal frá sætum strák á meðan á veikindunum stóð
-var búin að skúra þegar að ég veiktist svo ég gat legið kyrr í staðinn fyrir að glápa á rykið og grípa jafnvel í einhverju æði til moppunnar.
-átti til nóg af Grand Marnier.
Annars stefnir í bilaða viku núna. Gæti þurft að vinna smá og fylgjast með í skólanum. Svo er það sumarið hvað á ég að gera? Indland, Thailand, enskuskóla einhversstaðar, finna mér bara kall til að kela við í rigningu í Vaglaskógi, vinna í sumarfríinu eins og töff íslendingar gera og hreykja sér af því að hafa bara sko aldrei á ævinni tekið frí?
Hjálpa mér fólk.....

Farin að borða pizzu með sambýlingnum
Anna Italiana

8 Comments:

  • At 10:57 PM, Anonymous Ásdís frænka said…

    Heyrðu... var afmælisveislan mín ekki jákvæð? ;o)

    En já, mér líst alltaf betur og betur á bakpokaferðalag um Asíu... Hmm... Verðum að ræða þetta betur bráðlega!

     
  • At 11:55 AM, Blogger Anna Vala said…

    Afmælisveislan þín var æði enn það fellur ekki undir veikindavikuna. Var eiginlega batnað þegar að ég kom til þín. Ferðalagið verður sko að fara í vinnslu : )

     
  • At 7:08 PM, Anonymous Nafnlaus said…

    halló elskan þú ætlar að koma í sumarfríinu til ´mín og vera aupair:) hehe annars skil ég þig vel með greys:) ég grenjaði einmitt næstum því yfir einum í morgun:) kveðja anný og bumbutröllið:)

     
  • At 11:10 PM, Blogger Anna Vala said…

    Dem yfir hvaða þætti....er komin á 9 í seríu 3 þetta er eins og sjúkdómur þetta dót

    Love you gamla mín
    ég get verið au pair í viku:)

     
  • At 11:43 AM, Anonymous Dagný said…

    Úff, bíddu bara, er búin að vera að horfa á 11-13 og ég er búin að vera grátandi yfir þessu. Hafðu vasaklútinn tilbúin ef þú ert viðkvæm, efast samt um að þú sért svona viðkvæm eins og ég.

     
  • At 11:49 AM, Blogger Anna Vala said…

    Æ æ æ ekki segja þetta. Jú ég er sko viðkvæm. Grenja yfir svona þáttum er alger kelling

     
  • At 12:00 PM, Blogger Guðlaugur said…

    Nóg af Grand Marnier? Nóg fyrir alla helvítis blokkina...

     
  • At 2:00 PM, Blogger Anna Vala said…

    Oooohh Grand marnier. Mig langar í svoleiðis : )

    kemstu með einfaldan til mín gullið mitt ??

     

Sendu inn athugasemd

<< Home

 
eXTReMe Tracker