Hugleiðing dagsinsMér finnst eins og það hafi verið í gær sem að ég ákvað að flytja í bæinn og læra kokkinn....enn nei það eru að verða liðin 8 ár VÁ. Hvað var ég að spá ? Jú mig langaði að læra að verða matreiðslumaður og það fór ég og gerði. Reyndar á þrjóskunni þar sem að ekki voru allir á eitt sáttir að stelpuflónið ætlaði að flytja að heiman 16. ára. Já þrjóskan hjálpar stundum þó að þetta hafi líka stundum verið einmannalegt....ég þekkti jú engan í Reykjavík nema bróður mömmu og hans fjölskyldu.
Ekki í eina mínútu hef ég samt séð eftir því að hafa farið þessa leið þó að oft hafi vegurinn ekki verið eins og hann átti að vera. Það er enginn sem segir að þó maður læri eitt að maður geri ekki annað. Um það eru mýmörg dæmi sem óþarft er að telja upp. Margir eiga erfitt með að skilja af hverju ég vinn ekki við það. Einn af þeim sem á erfitt með að skilja það er hann afi minn. Blessaður kallinn, ekki nóg með að ég hafi lært kokkinn og vinni síðan fyrir stéttarfélag og sé ekkert menntuð í því og hitt að ég búi með homma. Það er held ég erfiðara fyrir hann, hann bara skilur þetta ekki. Þessi kynslóð er ekki alin upp við þessi breyttu mynd af lífinu. Já lífið er hreint ekki alltaf eins maður sá það fyrir sér. Held að það sé eiginlega skemmtilegra. Þegar að ég var yngri og með mínar hugmyndir sá ég t.d ekki fyrir mér að stundir eins og Despó/Grey kvöld með Gulla, sakleysislegar heimsóknir frá yndislegum nágrönnum, spjall í saumaklúbbnum ofl væri það sem að gæfi lífinu mest gildi. Í þessari viku hef ég farið 2x út að borða með sitt hvorri æðislegri vinkonu minni. Vá hvað ég er heppin. Það má guð vita að ekki sá ég allt þetta yndislega fólk í kringum mig þegar að ég spáði í framtíðina.
Later góða fólk
Anna panna

7 Comments:
At 3:16 PM,
heimsborgari said…
Okkur óraði heldur ekki fyrir því að þú myndir storma inn í líf okkar með yndislegum áherslum og litum. Takk Anna!
Svo eru góðir nágrannar nærri jafn mikilvægir og góðir vinir!
At 10:10 PM,
Nafnlaus said…
Gaman að sjá að þú bloggir enn þá,
En get alveg komið með þér að borða þegar þér vantar félagsskap ;)
ps hvenar verður manni boðið í bíltúr á nýja bílnum
kv. gamli
At 11:35 PM,
Linda klippari said…
blessuð vinkona!! það hefur nú bara verið gaman að hafa þig í lífinu mínu þannig að það er gott að þú komst suður.. takk æðilsega fyrir hjálpina á laugardaginn :O)
knússsss Linda
At 10:07 PM,
ekki frænkan said…
já, og svo skulum við ekki heldur gleyma að þú ert spegill fyrir fólkið í kringum þig, ef við erum svona frábær hlýtur þú að vera það líka ;) Never forget it girlfriend!
At 1:29 PM,
Dagný said…
Flott blogg hjá þér stelpa og mikið til í því. Ég er einmitt mikið búin að vera í svona pælingum en ég trúi því svo innilega að allt sem gerist á að gerast og er fyrirfram ákveðið, hvort sem það er eitthvað gott eða slæmt. Og allt þetta mótar persónuna okkar.
Og maður er einmitt svo hepppin að eiga allt þetta fólk sem er í kringum mann. En nóg um það, sjáumst við ekki á árshátíðinni?? Ég ætla að reyna hvað ég get að komast, er allavega búin að skrá mig, svo er næsta vandamál bara kjóll ????? Heyrumst skvís
At 10:59 AM,
Guðbjörg said…
Ég verð að segja að ég er sammála vini mínum honum Paulo Freire að við eigum að hafna forlagahyggju. Margir sætta sig bara við að hlutirnir eru eins og þeir eru og segja að það sé ekkert við þessu að gera EN það er fólkið sem breytir hlutunum, það eru ekki hlutirnir sem breyta sér sjálfir. Anna mín þú hefur komið þér vel áfram og eignast góða vini að sjálfsdáðum ekki vegna forlaga og þú ert raunveruleg hugvera. Hugveran lætur ekki bara koma fram við sig sem einhverskonar hlut. Hugveran áttar sig á eigin breytileika og á því að allt breytist og er þátttakandi í þessari breytingu um leið og hún mótar sjálf veruleikann.=)
At 4:20 PM,
Anna Vala said…
Oooooo hvað ég á mikil krútt að.
Dagný: Hlakka til að sjá þig á árshátíðinni.
Linda mín: hjálpa þér sko any time.
Guðbjörg: Elska þig meira enn allt. knús
Ekki frænkan: Ætla að ættleiða þig sem frænku. Er það ekki hægt ?
Gulli: Ekki koma meira gay heim...elska þig eins og þú ert heheh.
Sendu inn athugasemd
<< Home