Anna Vala-litla stelpan með sleifina

Það er tvennt sem ég safna: pappírar og traustir vinir.

sunnudagur, mars 25, 2007

Þar sem hægt er að slappa af....
Kaupmannahöfn er æðisleg borg engin New York enn samt er eitthvað sem toppar hana ? Í kóngsins Köben er í lagi að sötra bjór hvar sem er og hvenær sem er. Hún er falleg, notaleg og svolítið íslensk. Maður getur rölt um og sagt Ísland á þetta og þetta og þetta....Enn svo er alltaf spurningin hvað það er að eiga osfrv og hver á hvern fyrir rest. Svo má auðvitað heyra íslenskuna í Hennes og Mauritz ef maður er að sálast úr heimþrá ja eða koma við á Mc Donalds.
Þessi borg minnir mig þó alltaf rosalega á á góða vinkonu mína sem að ég fór með þarna í fyrsta skipti, þess vegna er þetta svolítil Annýar borg. Það var bara alger snilld utan við að við vorum akkúrat á tímaskiptum. Þannig að í miðjum strætó vorum við allt í einu búnar að tapa einni klst he he. Það VARÐ fyndið stuttu síðar.
Síðast þegar að ég fór til Kaupmannahafnar fór ég með Tótu og Sollu systur hennar. Ég hitti þær á föstudegi og það var tekið strike beint á barinn. Drukkið öl, farið á flottustu matsölustaðina og hlegið út í eitt, ja svo má ekki gleyma Jagermaster sem drekka má við öllum meinum eins og ofáti og þynnku. Og já það virkar í öllum tilfellum Tótan mín þekkir lífið og hvað virkar best þó að hún hafi klikkað á að dansa við mig til 06. Ég fann aðra til þeirra hluta. Hressa íra og nokkra dani sem dönsuðu villtan dans við stelpuna fram eftir nóttu. Ekkert stress bara bjór og góður félagsskapur. Lentum ekkert í óeirðalögreglunni né fengum táragas í augun. Skildum ekki alveg þennan æsifréttaflutning að heiman um að allt væri að verða crazy við Norðurbrú. Og eftir dans við íra-sem að fengu nota bene óeirðalögregluna til sín, daður við lífið og tilveruna, ofverslun í Sænsku aðalbúllunni, einni ljósakrónu seinna, einu írsku símanúmeri, brunch á Kaffe Norden og kveðjukossum var ferðinni lokið. Stelpurnar fóru heim og ég fór á fund. Tíminn hreinlega líður of hratt í svona ferð. Þarf augljóslega að fara oftar erlendis: )

Kossar
Anna

2 Comments:

  • At 5:59 PM, Anonymous Nafnlaus said…

    ég auðvita bara elska koben:) og þessi ferð var bara yndisleg:)strætó dæmið hehehehe við vorum nú ekkert sérlega ánægðar þá...verðum endilega að fara aftur saman í svona ferð.. knús knús anný

     
  • At 9:01 PM, Blogger Anna Vala said…

    Við eigum sko eftir að fara aftur. Það er pottþétt. Gæti verið að þú myndir detta í barnafatabúðir....ég reyni samt að hjálpa þér að komast í ölið he he

    Koss Anna

     

Sendu inn athugasemd

<< Home

 
eXTReMe Tracker